Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Maður náttúrlega getur ekkert treyst Dönum“

Sjónvarpsþættirnir Danska konan hafa hlotið glimrandi góðar viðtökur í Danmörku en þættirnir voru frumsýndir þar í landi í síðustu viku. Benedikt Erlingsson, leikstjóri þáttanna og annar af handritshöfundum þeirra, segir ánægjulegt að lesa dómana í dönsku blöðunum. Hann hefði allt eins getað búist við því að Danir myndu ekki átta sig á þáttunum.„Maður náttúrlega getur ekkert treyst Dönum. Ég hélt að þetta gæti farið hvert sem er, ég hélt kannski að þeir myndu líta í hina áttina því við erum auðvitað lítil kólónía. Danir eru þannig að þeir hafa voða lítinn áhuga á Norðurlöndum og norrænu ídentíteti. Danir hafa miklu meiri áhuga á Róm sjáðu til, eða Evrópu, Þýskalandi, Frakklandi. Þeir skammast sín frekar eða finnst þetta hjákátlegt og ekkert kúl, þetta nordíska dæmi allt saman.“Benedikt seg
„Maður náttúrlega getur ekkert treyst Dönum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta