„Maður finnur alveg spennuna í loftinu og maður finnur að það eru tímamótakosningar sem hér fara fram,“ sagði Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, í samtali við Morgunblaðið í gær þar sem hún ferðaðist milli kjörstaða í ungversku þingkosningunum. Hún var þar stödd á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og sinnti kosningaeftirliti fyrir hönd Alþingis.