Stjórn Fangavarðafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af yfirfullum fangelsum. Erfiðara sé að tryggja öryggi fanga og starfsfólks og halda uppi eðlilegri þjónustu. Dæmi séu um að fjórtán fangar dvelji á deild fyrir átta og að fangar þurfi að dvelja í einangrun eða á lögreglustöðvum langtímum við ófullnægjandi aðstæður.