Stjórn Fangavarðafélags Íslands segir að ástand fangelsa sé þannig að geta fangavarða til að bregðast við illdeilum og erjum meðal fanga sé verulega skert og ekkert svigrúm til að flytja fanga milli staða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu félagsins sem lýsir þungum áhyggjum af stöðu fangelsa landsins. Stjórnin segir að síðustu misseri hafi öll fangelsi landsins, bæði öryggisfangelsi og opin fangelsi, verið nær stöðugt með 100 prósent nýtingu. Þess vegna hafi langir biðlistar myndast og ekki verið hægt að taka við síbrotamönnum og öðrum sem hafi verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Því hafi ýmist þurft að sleppa fólki úr haldi eða láta það dvelja langtímum saman við ófullnægjandi aðstæður í fangaklefum á lögreglustöðvum.Stjórnin segir að almennir fangar hafi verið látnir dvelja í einangrunarkle