Héraðsdómur Vesturlands felldi á föstudag úr gildi úrskurð óbyggðanefndar um að Hornbjarg á Vestfjörðum væri þjóðlenda. Dómstóllinn staðfesti aftur á móti úrskurð nefndarinnar um að Bjarnarnes teljist þjóðlenda.Á fimmta tug einstaklinga stefndi ríkinu vegna eignarhalds á Hornbjargi og hafði betur. Í dóminum er vísað í frásögn Landnámu af landnámi Geirmundar heljarskinns þar sem sérstaklega var minnst á Horn. „Getur dómurinn ekki fallist á það með óbyggðanefnd að staðhættir mæli sérstaklega gegn því að Hornbjarg hafi verið numið. Er þar horft til þess að almennt verður að gera ráð fyrir því að land við sjávarsíðuna hafi verið numið frá öndverðu. Verður ekki séð að nokkuð bendi til þess að landnámsmenn hafi litið svo á að einstakir klettar eða björg hafi fallið utan landnáms síns og benda lý