Útlit er fyrir rólegheitaveður víðast hvar á landinu. Þó blæs ákafar á Vestfjörðum þar sem vindur gæti farið í 18 metra á sekúndu. Fólk á Norður- og Austurlandi getur fagnað því að þar verður þurrt að mestu eftir hádegi. Veðurspáin er svohljóðandi:Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en norðaustan 10-18 á Vestfjörðum fram eftir degi. Lægir þar síðdegis. Rigning með köflum eða skúrir, en stöku él eða slydduél um vestanvert landið. Þurrt að mestu á Norður- og Austurlandi eftir hádegi, en skúrir suðaustantil með kvöldinu.Austlæg eða breytileg átt 5-13 á morgun og dálitlar skúrir, en hægari og þurrt að mestu norðan jökla. Bætir í vind og úrkomu syðst seint annað kvöld. Hiti 1 til 9 stig, en frystir víða norðan- og austanlands undir kvöld.