Afgerandi sigur Tisza-flokksins og Peters Magyars í þingkosningunum í Ungverjalandi í gærkvöld, og aukinn meirihluti flokksins á þinginu í Búdapest, þýðir að flokkurinn hefur nú svigrúm og umboð til að afturkalla margar af þeim grundvallarbreytingum á stjórnskipulagi og stofnunum sem Fidez-flokkur Viktors Orban hefur gert undanfarin sextán ár.En sigurinn í gærkvöld þýðir ekki aðeins vatnaskil fyrir ungverska kjósendur, heldur einnig fyrir Evrópusambandið, þar sem Orban hefur í langan tíma nýtt sér veikleika stjórnkerfisins, spilað á neitunarvald einstakra ríkja, tekið mikilvæg mál í gíslingu og fengið tilslakanir í staðinn.Það var auðvitað ástæðan fyrir því að Ursula von der Leyen fagnaði sigri Magyars, aðeins nokkrum mínútum eftir að Orban hafði viðurkennt ósigur sinn og Fidez-flokksins.Þ