Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríkjaforseti gagnrýnir Leo XIV páfa harðlega

Donald Trump gagnrýndi Leo XIV páfa í gær og sagði að hann væri ekki mikill aðdáandi páfans eftir að páfinn bað fyrir friði á laugardaginn. Trump lét þessi ummæli falla í viðtali við fjölmiðla á Joint Base Andrews-herstöðinni í Maryland. Hann sagði að páfinn væri frjálslyndur og hefði ekki trú á því að stöðva glæpi.Leo XIV er fyrsti bandaríski páfi kaþólsku kirkjunnar. Hann biðlaði til leiðtoga á laugardaginn um að binda enda á ofbeldi og sagði að nú væri nóg komið af sjálfsdýrkun og dýrkun á peningum. Nóg væri komið af sýndarmennsku og stríði.Þessi beiðni páfans féll ekki í kramið hjá Bandaríkjaforseta sem gagnrýndi páfann einnig harðlega í langri færslu á samskiptamiðlinum Truth Social í nótt. Trump sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranar ættu kjarnorkuvopn eða væri mótfal
Bandaríkjaforseti gagnrýnir Leo XIV páfa harðlega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta