Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, fer í þriggja daga opinbera heimsókn til Kína í dag. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja tengslin við annað stærsta hagkerfi heims. Stjórnvöld á Spáni vilja tryggja meiri viðskipti við Kína, sérstaklega með landbúnaðar- og iðnaðarvörur. Þá er einnig áhugi á því að kanna sameiginleg verkefni í tæknigeiranum.Þetta er fjórða heimsókn Sanchez til Kína á jafnmörgum árum. Leiðtogar Bretlands, Kanada og Þýskalands hafa einnig heimsótt Kína nýverið og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað komu sína til Kína í maí.Samskipti Spánar og Bandaríkjanna hafa verið stirð undanfarið eftir að Trump hótaði því í síðasta mánuði að hætta viðskiptum við Spán eftir að spænsk stjórnvöld neituðu Bandaríkjamönnum um að nota herstöðvar á Spáni til að gera árásir á Íran.