Utanríkisráðherra Íran Abbas Araghchi.EPA / ABEDIN TAHERKENAREHUtanríkisráðherra Íran, Abbas Araghchi, segir að samninganefnd Írana hafi verið aðeins skrefi frá því að komast að samkomulagi við Bandaríkin í samningaviðræðunum í Islamabad í Pakistan á föstudaginn.Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X, sagði Araghchi að Íran hefði lagt sig fram um að binda enda á stríðið en þegar samninganefndin væri aðeins skrefi frá því að ná samningi mætti henni hámarkshyggja, breytt markmið og hindranir.Hann bætti svo við að lærdómurinn væri enginn. „Gott leiðir af sér góðan vilja. Fjandskapur leiðir af sér fjandskap.“Færsla utanríkisráðherra Íran Abbas Araghchi á X.comX / Abbas Araghchi