Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ríkisstjórn Írlands lækkar skatt á eldsneyti í kjölfar mótmæla

Ríkisstjórn Írlands tilkynnti eftir neyðarfund í dag að skattur á bensíni og dísilolíu yrði lækkaður tímabundið. Síðan á þriðjudag hafa bændur og vöruflutningabílstjórar þar á landi mótmælt hækkandi eldsneytisverði í kjölfar stríðsins í Mið-Austurlöndum.„Sem ríkisstjórn heyrum við í ykkur,“ sagði Simon Harris fjármálaráðherra Írlands á blaðamannafundi. „Við höfum brugðist við og við erum að grípa til frekari aðgerða í dag.“Ríkisstjórnin tilkynnti tíu senta lækkun á lítrann (um 14 ISK) af bæði dísilolíu og bensíni þangað til í júlí. Þá verður fyrirhugaðri hækkun á kolefnisskatti frestað frá maí fram að fjárlögum í október.Mótmæli síðustu daga þróuðust úr hægfara bílalestum á hraðbrautum og takmörkun á aðgengi að fjölförnustu götum Dyflinnar yfir í að mótmælendur lokuðu að hluta til einu olí
Ríkisstjórn Írlands lækkar skatt á eldsneyti í kjölfar mótmæla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta