Viktor Orban játaði sig sigraðan í ræðu til stuðningsmanna sinna rétt í þessu og sagði við þá: „Niðurstaða kosninganna er skýr og sársaukafull.“Búið er að telja nær 95 prósent atkvæða í þingkosningunum í Ungverjalandi. Eins og stendur fær Tisza-flokkur Péters Magyar 138 þingmenn en Fidesz-flokkur Viktors Orbans 54.Róttæki hægriflokkurinn Mi Hazank fær 7 þingmenn.„Við gefumst aldrei upp, það er eitt sem fólk veit um okkur, við gefumst aldrei upp. Dagarnir fram undan eru til þess að við getum grætt sár okkar,“ sagði Orban í ræðunni. „HJARTA EVRÓPU SLÆR FASTAR“ Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, er meðal þeirra fyrstu til að óska Magyar til hamingju með kosningasigurinn. „Hjarta Evrópu slær fastar í Ungverjalandi í kvöld,“ segir hún. „Ungverjaland hefur val