Péter Magyar leiðtogi Tisza-flokksins flutti sigurræðu fyrir gríðarlegum mannfjölda í Búdapest fyrir skömmu.Búið er að telja 98 prósent atkvæða í þingkosningunum í Ungverjalandi. Ljóst er að Tisza-flokkur Magyars fer með stórsigur. Tisza-flokkurinn fær 138 þingsæti en Fidesz-flokkur Viktors Orbáns 55.Róttæki hægriflokkurinn Mi Hazank fær 6 þingsæti.„Tisza og Ungverjaland unnu þessar kosningar,“ sagði Magyar við mikil fagnaðarlæti.„Saman frelsuðum við Ungverjaland og losuðum okkur við Orbán-stjórnina.“Viktor Orbán, sem hefur verið forsætisráðherra Ungverjalands síðustu sextán ár játaði sig sigraðan um klukkan hálf átt í kvöld, þegar búið var að telja um sextíu prósent atkvæða. Það gerði hann í ræðu til stuðningsmanna sinna þar sem hann sagði niðurstöður kosninganna skýrar og sársaukafullar.