Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Söng við YouTube-myndskeið á Coachella-hátíðinni

Kanadíska stórstjarnan Justin Bieber tróð upp á Coachella-tónlistarhátíðinni í Kaliforníu í gærkvöldi. Þetta voru fyrstu stóru tónleikar hans í fjögur ár.Flutningur Biebers var að sumu leyti með nokkuð óvenjulegu móti en hann eyddi stórum hluta tónleikanna fyrir framan fartölvu og söng við YouTube-myndskeið eldri laga sinna – til dæmis Baby og Never Say Never. Þá sýndi hann myndbönd af sjálfum sér að syngja á barnsaldri, áður en hann varð heimsfrægur.Árið 2022 hætti Bieber við tónleikaferðalag um heiminn eftir að hafa greinst með Ramsay Hunt-heilkenni sem olli meðal annars lömun í andliti.Hann gaf út tvær plötur, Swag og Swag II, árið 2025.
Söng við YouTube-myndskeið á Coachella-hátíðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta