Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Aðgerðirnar gagnist helst fyrirtækjum og ferðamönnum

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir að skammtímaefnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar gagnist helst fyrirtækjum og ferðamönnum en ekki þeim sem mest þurfi á að halda. Sólveig segir að aðgerðirnar hafi komið flatt upp á hana.„Við vorum að funda í trúnaðarráði Eflingar þegar við fengum fregnir af því að það væri búið að boða til blaðamannafundar um aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Við höfðum ekki haft neina vitneskju um það að svo ætti að vera og höfðum enga vitneskju um það hvað ætti að fara að kynna,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir sem telur undarlegt að stéttarfélagið hafi ekki verið haft með í ráðum.Aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru kynntar á föstudag og eru þríþættar: Virðisaukaskattur á eldsneyti lækkar úr 24 prósentum í 11, aukið verður við vöktun á verðlagningu og hleðslustöðvum
Aðgerðirnar gagnist helst fyrirtækjum og ferðamönnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta