Að minnsta kosti fjögur sveitarfélög hafa boðið upp á frístundastyrk fyrir eldri borgara með góðum árangri. Ljóst er að fljótlega munu fleiri bætast í hópinn.Akureyrarbær samþykkti á dögunum að veita eldri borgurum frístundastyrk. Feta þeir þar með í fótspor Reykjanesbæjar, Hafnarfjarðar, Mosfellsbæjar og Voga. Markmiðið með styrknum er að styðja eldri borgara til þátttöku í heilsueflandi íþrótta- og tómstundastarfi.„Okkur finnst það mjög gott að sveitarfélög séu að taka upp frístundarstyrk til þess að hvetja fólk til hreyfinga og tómstunda, þannig þetta er mjög jákvætt skref,“ segir Björn Snæbjörnsson, formaður Landssambands eldri borgara.Vel hefur gengið í öðrum sveitarfélögum að mati Björns:„Þetta hefur gengið yfirleitt mjög vel. Sérstaklega nefni ég Reykjanesbæ og Voga sem hafa verið m