Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kjörstaðir að loka í tímamótakosningum

Kjörstaðir fara að loka í Ungverjalandi þar sem þingkosningar eru haldnar í dag. Fyrstu talna er að vænta upp úr klukkan átta að íslenskum tíma.Mikið er undir í kosningunum og met hefur verið slegið í kjörsókn. Samkvæmt nýjustu tölum hafa 77,8 prósent greitt atkvæði – fleiri en nokkurn tíma í sögu ungverska kosninga.Langar biðraðir hafa orðið við kjörstaði og verður þeim ekki lokað fyrr en allir hafa fengið að greiða atkvæði.Skoðanakannanir hafa bent til þess að stjórnarandstöðuflokkurinn Tisza muni fara með sigur af hólmi og binda endi á stjórnartíð Viktors Orbán og Fidesz-flokksins. Hann hefur stýrt Ungverjalandi í 16 ár.
Kjörstaðir að loka í tímamótakosningum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta