Stærstu dýravelferðarsamtök Bretlands fjarlægðu 87 hunda af 250 hunda heimili í Englandi á dögunum.Málið hefur vakið svo mikla hneykslan að samtökin neyddust til þess að bera opinberlega af sér sakir um að ljósmynd sem birt var af hundunum fjölmörgu hafi verið unnin af gervigreind. Á myndinni má sjá á þriðja tug illa hirtra hunda á skítugu stofugólfi.Eigendur hundaskarans sögðu samtökunum að þau hefðu misst öll tök á fjölgun hundanna og að ástandið hefði fljótt farið úr böndunum. Samtökin segja eigendurna í mjög viðkvæmri stöðu og því hafi þau ákveðið að kæra þá ekki fyrir brot á lögum um dýravelferð.Samtökin, RSPCA, segja að tilvikum sem þessum þar sem hafa þurfti afskipti af heimilum með fleiri en tíu dýr hafi fjölgað um sjötíu prósent frá 2021.