ÍBV og FH skildu jöfn 1-1 í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Hásteinsvelli í dag eftir leik tveggja hálfleikja. FH-ingar mættu illa til leiks en stýrðu ferðinni eftir hlé. Markaskorararnir tveir skoruðu báðir sitt fyrsta mark í efstu deild.