Um fjörutíu jarðskjálftar hafa orðið á svæði suðvestan við Hestfjall á Suðurlandi síðan rétt fyrir hádegi í dag, flestir þeirra nokkuð litlir. Stærsti skjálftinn mældist 2,5 laust fyrir klukkan hálf eitt. Féttastofu hefur borist ábending um að hann hafi fundist í byggð.Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að ekki séu um óvenjulegan atburð að ræða. Ekki sé tímabært að tala um jarðskjálftahrinu, yfirleitt sé viðmiðið fyrir slíkt 50-60 skjálftar. „Ég myndi kannski frekar kalla þetta hviðu.“Svæðið er þekkt skjálftasvæði og segir Ingibjörg Andrea að um dæmigerða spennulosun sé að ræða. „Það koma reglulega hrinur á þessum slóðum.“ Veðurstofan fylgist þó vel með þróun mála vegna þess að stærri skjálftar geta orðið á svæðinu.