Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd Alþingis, segist ekki skilja hvers vegna ekki var betur vandað til verka við fyrirætlaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.Vísar hann þar í umsögn landskjörstjórnar sem barst utanríkismálanefnd í síðustu viku. Þar voru gerðar athugasemdir við orðalag spurningarinnar sem bera á upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst.Sigurður Ingi segir að ekki megi bera upp svo gildishlaðna spurningu og bendir á að landskjörstjórn hafi einnig sett út á tímasetningu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Vinnubrögð ríkisstjórnarinnar þykja honum einkennast af hroðvirkni.Í umsögn hennar er vakin athygli á því að væntanlegur kjördagur geti haft í för með sér „ákveðna erfiðleika við almennan undirbúning k