Metfjöldi hefur greitt atkvæði í ungversku þingkosningunum sem fram fara í dag. Um er að ræða mestu kjörsókn frá falli kommúnismans. Klukkan 15 að staðartíma höfðu 66 prósent greitt atkvæði en í síðustu kosningum var hlutfallið 52,6 prósent á sama tíma dags.Um tímamótakosningar er að ræða. Óháðar skoðanakannanir benda til þess að stjórnarandstæðingar muni sigra Viktor Orbán sem hefur stýrt Ungverjalandi síðastliðin 16 ár.Leiðtogar beggja stóru flokkanna hafa túlkað kjörsóknina sér í hag en andstæðingar ríkjandi stjórnvalda eru fullvissir um að Tisza-flokkurinn fari með sigur af hólmi. Kannanir hafa bent til þess. Báðar fylkingar hafa sakað hvor aðra um kosningasvindl og sérfræðingar gera ráð fyrir því að niðurstaðan verði kærð óháð því hver sigri.Forsætisráðherrann Viktor Orbán sagði þegar