Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að bandaríski sjóherinn ætli að setja Hormússund í herkví og hleypa engu skipi þar um sem greitt hefur Íran toll til að sigla um sundið.Trump skrifar um þessi áform á Truth Social og af langri færslu að dæma virðast þau eiga að vera viðbragð við því að friðarumleitanir runnu út í sandinn í nótt.Trump segir að Íranar kúgi heimsbyggðina alla með lokun Hormússunds og segir þá hafa tilkynnt að „það gætu verið tundurdufl þarna einhvers staðar“ sem enginn viti um nema Íranir sjálfir. Hann segist ætla að fela sjóhernum að eyðileggja öll þau tundurdufl sem kunna að finnast á sundinu.„Hvaða Írani sem ræðst á okkur, eða á friðsöm skip, verður sprengdur í tætlur,“ segir Trump á Truth Social.Hormússund hefur verið lokað vikum saman, sem haft hefur geigvænleg