Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Ég hef svolítið gaman af því að kafa í það sem þykir ekki fínt“

„Það er ekkert skemmtilegra en að fá að tala um bækur við fólk sem hefur áhuga á bókum. Það eru bara stórkostleg forréttindi,“ segir Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra. Hún hefur að undanförnu kennt námskeið um bókmenntir hjá endurmenntun Háskóla Íslands, nú síðast um ástarsögur. Á bilinu 50 til 90 manns hafa sótt námskeiðin.„Eftir að ég steig út af hinu opinbera sviði þá fór ég og leitaði í ræturnar og byrjaði á að kenna námskeið um glæpasögur sem ég þekki vel. Ég kann það allt saman ágætlega. Svo hugsaði ég að ég gæti farið að rifja upp gömul fræði, þannig að ég kenndi svo námskeið um metsölubækur og núna er ég að kenna ástarsögur.“Á námskeiðinu hefur Katrín lagt áherslu á íslenskar ástarsögur. Fyrst voru teknar fyrir bækur Jóns Thoroddsens, Piltur og stúlka og Maður og kon
„Ég hef svolítið gaman af því að kafa í það sem þykir ekki fínt“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta