Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Átta dagdvalarrými verða opnuð í uppsveitum Árnessýslu

Sveitarstjórnir í uppsveitum Árnessýslu hafa náð samkomulagi við ríkið um að að opna dagdvalarrými fyrir átta eldri borgara en engin slík þjónusta er þar í dag.Sveitarstjórnarmenn í Grímsnes- og Grafningshreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Hrunamannahreppi og Bláskógabyggð hafa barist til margra ára fyrir því að fá dagdvalarrými fyrir aldraða á svæðinu og nú hefur það loksins gerst og ef allt gengur upp þá verður slík aðstaða opnuð í Reykholti í Bláskógabyggð næsta haust og í Brautarholti á Skeiðum.Ásta Stefánsdóttir er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.„Já, það er svo ánægjulegt að það er búið að samþykkja að sveitarfélögin í uppsveitum Árnessýslu fái heimild til að reka dagdvöl eða dagdvalarþjónustu fyrir eldri borgara. Þetta er ánægjulegur áfangi því það er virkilega skortur á þjónustu við
Átta dagdvalarrými verða opnuð í uppsveitum Árnessýslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta