Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Giftist danska krónprinsinum

Begga Rist ákvað eftir bílslys að gera bara það sem veitir henni ánægju og rekur í dag bæði hestaleigu og reiðskóla, sem gerir henni kleift að vera með hestunum sem hún elskar alla daga. Hún og eiginmaður hennar, sem hún líkir hlæjandi við danska krónprinsinn, hafa tekist á við ýmsar áskoranir, en eru samstíga og eiga sér þann draum að tengja íslenska hestinn betur þjóðinni og breiða hróður hans sem víðast.Begga sagði sögu sína í þættinum Fyrst á fætur á Rás 2, en hún fór ung til náms í Frakklandi og bjó svo lengi í Danmörku og líkaði vel. Hún öðlaðist kraftaverkabata eftir bílslys þegar hún leitaði eftir óhefðbundinni lækningu hjá nágrannakonu sinni og segir hestana hafa verið sína heilara í gegnum krabbameinsmeðferð.Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að ofan.
Giftist danska krónprinsinum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta