„Þótt þitt eintak af bók fari í ruslið þá glatast hún ekki að eilífu,“ segir Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar, fagstjóri hjá Landsbókasafninu, sem í kjölfar umræðu um fagurbókmenntir í Sorpugámum telur rétt að minna á lög um skylduskil sem mögulega geti friðað samvisku fólks sem þarf að henda bókum.