Tilkynnt var um reyk í húsnæði á Granda rétt fyrir klukkan 10:00 í dag. Þetta staðfestir Björn Ingi Guðjónsson, aðstoðarvarðstjóri Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu. Dælubíll og sjúkrabíll voru sendir á vettvang en eftir að sjúkrabíllinn kom fyrstur á vettvang var dælubíl snúið við þar sem ekki var talin þörf á honum. Ekki reyndist eldur í húsnæðinu en lagði frá því reyk. Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk í húsnæði á Granda.RÚV / Ragnar Visage