Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vopnahlé í Úkraínu margbrotið

Kona í St. Volodomyr-dómkirkjunni í Kyiv í gær, 11. apríl. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / SERGEY DOLZHENKOÞrír sjúkraflutningamenn særðust í drónaárás rússneska hersins í Sumy-héraði í Úkraínu í nótt samkvæmt úkraínska fjölmiðlinum Kyiv Independent. Árásirnar eru brot á samkomulagi um vopnahlé sem Rússar og Úkraínumenn samþykktu vegna páskahátíðarinnnar.Bæði Úkraínumenn og Rússar hafa tilkynnt um brot á vopnahléi frá því að það tók gildi klukkan 4 síðdegis í gær. Rússar saka Úkraínumenn um 1.971 atvik sem flokkað er sem brot á vopnahléi. Úkraínumenn saka Rússa á móti um 2.299 atvik sem brot á vopnahléi.Fréttin hefur verið uppfærð með fjölda atvika sem brutu gegn vopnahléi bæði hjá Rússum og Úkraínumönnum.
Vopnahlé í Úkraínu margbrotið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta