Hatrammri baráttu fyrir þingkosningarnar er lokið hér í Ungverjalandi og búast má við að milljónir Ungverja greiði atkvæði sitt í kjördeildum sem opnaðar voru eldsnemma í morgun. Þeim verður lokað um kvöldmatarleytið (17.00 að íslenskum tíma), og skömmu síðar ættu útgönguspár að birtast.Fyrstu tölur gætu farið að birtast seinna í kvöld og ef eitthvað er að marka óháðar skoðanakannanir sem birst hafa undanfarna daga og vikur, þá gæti Tisza-flokkurinn með Peter Magyar í fararbroddi, verið að hrósa sigri einhvern tímann með kvöldinu.Magyar verður á stórri útisamkomu flokksins á bökkum Dónár í Búdapest í kvöld og væntir þess örugglega að geta lýst yfir endalokum valdatíðar Viktors Orbans, sem verið hefur forsætisráðherra Ungverjalands undanfarin sextán ár. KOSNINGAKERFI SEM HENTAR VALDHÖFUM