Frumvarp innviðaráðherra til nýrra heildarlaga um sveitarfélög var lagt fram á þingi í mars. Meðal annars eru boðaðar breytingar á reglum sem gilda um samvinnu sveitarfélaga, en ráðherra hefur lýst yfir vilja til að fækka sveitarfélögum.Mikil óánægja er meðal sveitarfélaga á landsbyggðinni, sérstaklega þeirra sem smærri eru, um nýja frumvarpið. Tólf þeirra fengu til liðs við sig Guðjón Bragason, sérfræðing í sveitarstjórnarrétti, til þess að skila inn ítarlegri greinargerð um frumvarpið.Í henni er gagnrýnt að frumvarpið hafi verið unnið í flýti og beri þess merki að vilja torvelda tilvist fámennra sveitarfélaga. Sveitarfélögin hafa gagnrýnt að frumvarpið sé til þess fallið að flækja og þyngja samvinnu sveitarfélaga og eigi eftir að koma öllum illa, ekki aðeins smærri sveitarfélögum. Sveita