Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Pólitík og dauði á Feneyjatvíæringnum

Það er yfirleitt spennuþrungið andrúmsloft þegar styttist í Feneyjatvíæringinn, líklega nafntoguðustu myndlistarhátíð heims. Nú er aðeins einn mánuður til stefnu, hátíðin hefst 9. maí og stendur fram í nóvember. Nú virðist allt vera á suðupunkti.Ástandið í heiminum hefur smitast inn í hátíðarhöldin. Ísrael, Rússland og Bandaríkin setja mark sitt á hátíðina og aðalsýningarstjórinn er látinn.Feneyjatvíæringurinn hefur verið haldinn annað hvert ár, með örfáum undantekningum, frá 1895, og er nú haldin í 61. sinn. Þetta er nokkuð óvenjuleg myndlistarhátíð þar sem hún er annars vegar eins og hálfgerðir Ólympíuleikar eða heimssýning þar sem lönd heimsins, eða menningarmálaráðuneyti hvers ríkis, fá boð um að senda listamann fyrir sína hönd og sýna svo í svokölluðum þjóðarskálum. Sum lönd eiga sína
Pólitík og dauði á Feneyjatvíæringnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta