Búast má við snjókomu, slyddu eða rigningu á norðan- og austanverðu landinu í dag. Vind lægir yfir daginn og síðdegis verður búið að lægja víða. Áfram verður þó hvasst norðvestanlands með snjókomu fram á kvöld og í nótt. Á morgun og á þriðjudag verða hægar breytilegar áttir í flestum landshlutum og dálitlar skúrir. Aðfaranótt miðvikudags og á miðvikudaginn ganga ný skil inn á landið sem valda strekkingi eða allhvössum vindi austantil og úrkomu um mestallt landið. Svalara og úrkomuminna seinni hluta vikunnar. Bláfjall í Mývatnssveit.RÚV / Kristófer Óli Birkisson