Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússar brjóta vopnahlé

Kona í St. Volodomyr-dómkirkjunni í Kyiv í gær, 11. apríl. Myndin tengist fréttinni óbeint.EPA / SERGEY DOLZHENKOÞrír sjúkraflutningamenn særðust í drónaárás rússneska hersins í Sumy-héraði í Úkraínu í nótt samkvæmt úkraínska fjölmiðlinum Kyiv Independent. Árásirnar eru brot á samkomulagi um vopnahlé sem Rússar og Úkraínumenn samþykktu vegna páskahátíðarinnnar.Yfir 400 árásir hafa verið tilkynntar sem áttu sér stað eftir að vopnahléið tók gildi klukkan 4 síðdegis í gær. Páskadagur er haldinn hátíðlegur í rússnesku og úkraínsku rétttrúnaðarkirkjunni í dag og vopnahléið á að gilda fram á miðnætti í kvöld.
Rússar brjóta vopnahlé

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta