Kennedy-fjölskyldan hefur löngum verið kölluð konungsfjölskylda Bandaríkjanna og um hana leikur svipuð dulúð og forvitni og um bresku konungsfjölskylduna. Hún er stór og fjölmenn og hefur verið áhrifamikil í bandarískum stjórnmálum áratugum saman.Hún virðist vera óþrjótandi brunnur efnis til afþreyingar, hvort sem það eru sjónvarpsþættir, kvikmyndir, heimildarmyndir, bækur eða annað. Nýjasta dæmið um það er umdeild þáttaröð frá streymisveitunni Disney+ sem fjallar um einkason Kennedys forseta, John F. Kennedy yngri og eiginkonu hans, Carolyn Bassette.Heimsbyggðin er enn hugfangin af Kennedy-fjölskyldunni, rúmlega 60 árum eftir að John F. Kennedy Bandaríkjaforseti var skotinn til bana. Nú eru þættir um örlög sonar hans og nafna í umræðunni.Þættirnir hafa ekki síst vakið athygli fyrir harða