Skil eru að færast yfir norðurhluta landsins sem valda snjókomu, slyddu eða rigningu, einkum norðan- og austanlands. Smám saman dregur úr vindi og síðdegis verður búið að lægja víða, en áfram verður hvasst norðvestanlands með snjókomu fram á kvöld og nótt.