Engilbert Sigurðsson, geðlæknir og prófessor í geðlæknisfræði, segir áríðandi að fólk undirbúi þriðja æviskeiðið svokallaða, þegar það lætur af störfum vegna aldurs. Hann segir helstu áskoranir vera einmanaleika og vanvirkni og því mikilvægt að fólk finni sér eitthvað að gera, virki tengsl og komi sér upp rútínu, félagslegi þátturinn sé flestum mjög mikilvægur þegar daglegum vinnutengdum samskiptum lýkur. Heilsa og...