Utanríkisráðherra Pakistan, Ishaq Dar, segir það áríðandi að Bandaríkin og Íran haldi áfram að virða vopnahléið þrátt fyrir að samningaviðræður hafi runnið út í sandinn í nótt. Þetta sagði hann í stuttri tilkynningu á ríkisfjölmiðli Pakistan í dag. Hann sagði að stjórnvöld í Pakistan væru tilbúin til að halda áfram að reyna að miðla málum og koma á viðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna.Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baqaei, sagði í tilkynningu á íranska ríkisfjölmiðlinum IRIB að enginn hefði búist við að samkomulag myndi nást við Bandaríkin í einni samningalotu. Hann sagði að stjórnvöld hefðu trú á því að samskiptum verði haldið áfram milli Írans og Pakistans og við aðrar bandaþjóðir í þessum heimshluta.Samninganefndir Írans og Bandaríkjanna funduðu í 21 klukkustund me