J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna segir að samningaviðræður hafi ekki tekist milli Bandaríkjanna og Íran eftir 21 klukkustundar viðræður. Þetta tilkynnti hann fjölmiðlum í Islamabad áður en hann yfirgaf Pakistan um klukkan 7 í morgun að staðartíma.Hann sagði að bandaríska samninganefndin hefði lagt fram einfalda tillögu og það væri þeirra besta lokatilboð. Það eigi eftir að koma í ljós hvort Íranar samþykki það. Vance gaf þó til kynna að Bandaríkjamenn ætluðu að gefa Írönum tíma til að íhuga tilboð Bandaríkjanna.Varaforsetinn sagði kjarnorkuvopn vera helsta ásteytingarsteininn milli Bandaríkjamanna og Írana. Íranar fullyrða að þeir séu ekki að þróa kjarnorkusprengju en Vance segir að Bandaríkin vilji sjá langtímaskuldbindingu frá Írönum um að þeir séu ekki að þróa eða ætli sér ekki að þ