Guðjón Þorgils Kristjánsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Háskólabíó í kvöld. Guðjón flutti lagið Strange eftir Celeste en hann söng lagið á íslensku við eigin texta, sem ber heitið „Ég skil ekki neitt.“Í öðru sæti voru Baldur og Sverrir frá Verslunarskóla Íslands með lagið „Way down we go“ og í þriðja sæti var Katla Líf frá Menntaskólanum í Reykjavík með lagið „Lúxus líf.“ Alls tóku söngvarar frá 25 framhaldsskólum þátt í keppninni í ár.Dómnefndina skipuðu Helgi Björnsson, Bríet og Þormóður Egilsson og gilti val þeirra til helmings á móti atkvæðum í sms-kosningu áhorfenda.