Leiðtogar tveggja stærstu stjórnmálaflokka Ungverjalands héldu sína síðustu kosningafundi á laugardagskvöld á lokametrum langrar baráttu sem endar með kosningum á sunnudag. Viktor Orbán hefur setið á forsætisráðherrastóli í sextán ár og stendur nú frammi fyrir sinni stærstu pólitísku prófraun til þessa nú þegar mið-hægriflokkurinn Tisza mælist með tveggja stafa forskot í flestum óháðum skoðanakönnunum.