Ríkisstjórn Írlands heldur aukaríkisstjórnarfund í dag sunnudag þar sem gefin verður uppfærsla á stöðu viðræðna vegna yfirstandandi eldsneytiskreppu og mótmælaaðgerðum vegna eldsneytisverðs þar í landi.Bændur og vöruflutningabílstjórar hafa mótmælt hækkandi bensínverði fimm daga í röð með því að setja upp vegatálma og hindra dreifingu eldsneytis um landið. Mótmælendur krefjast þess að ríkisstjórnin lækki eldsneytisverð.Hundruð bensínstöðva á Írlandi eru eldsneytislausar því mótmælaaðgerðirnar hafa tafið og hægt á dreifingu á eldsneyti víða um land. Írska lögreglan notaði í dag piparúða á mótmælendur og handtók þó nokkra en þeir höfðu stöðvað olíudreifingu frá Whitegate, einu olíuhreinsunarstöð Írlands, í þrjá daga. STJÓRNVÖLD UNDIRBÚA AÐGERÐARPAKKA Fulltrúar mótmælenda hafa fundað með r