Vertíð skemmtiferðaskipanna 2026 hefst eftir tæpa viku. Það er skipið AIDA Sol sem fær þann heiður að vera vorboðinn að þessu sinni. Skipið er væntanlegt til Reykjavíkur fimmtudaginn 16. apríl og mun leggjast að Skarfabakka klukkan 15 ef áætlanir standast.