Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveggja bíla árekstur á Mosfellsheiði

Tveggja bíla árekstur varð á Mosfellsheiði á þriðja tímanum í dag. Sjö voru fluttir á bráðamóttöku með minniháttar meiðsli. Þetta segir Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, við fréttastofu.Guðmundur segir að bílarnir hafi keyrt framan á hvorn annan og allir farþegar hafi verið uppistandandi þegar slökkvilið og sjúkrabíla bar að. „Lögregla tók svo við vettvangi. Ég geri ráð fyrir því að þeir hafi verið fluttir burt með dráttarbíl.“Ekki liggur fyrir hver orsök slyssins var. „Mér er ekki kunugt um það hvernig vegurinn var,“ segir Guðmundur.
Tveggja bíla árekstur á Mosfellsheiði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta