Linda Gunnarsdóttir, yfirflugstjóri Icelandair, segir lágflug yfir Vestmannaeyjabæ fyrr í dag litið grafalvarlegum augum. „Þetta var ekki gert með neinu leyfi frá okkur og þetta var algjörlega gert án okkar vitneskju.“Farþegavél í áætlunarflugi frá Frankfurt var flogið mjög lágt yfir Vestmannaeyjabæ í dag. Íbúum brá í brún, hús skulfu og hávaði var mikill.Ekki liggur fyrir hve lágt vélin hafi flogið yfir bænum og hvort það hafi verið undir viðmiðum um lágflug eða ekki. „Við erum að rannsaka það mál,“ segir Linda. „Þetta er eitthvað sem við munum skoða alvarlega og við lítum alvarlegum augum.“ BIÐJA VESTMANNAEYINGA AFSÖKUNAR Hún telur þó ekki hafa verið verulega hættu á ferðum. „En þetta er utan þess ramma sem við höldum okkur innan í hefðbundnu áætlunarflugi.“Icelandair biður Vestmannae