Opnað var fyrir útboð á fyrsta áfanga framkvæmda við SAk 25. mars. Fyrir liggja miklar framkvæmdir en fyrsti áfangi er jarðvegsvinna og malbikun á stóru svæði á sunnanverðri lóðinni. Settur forstjóri SAk, Erla Björnsdóttir, fagnar því að þetta sé farið af stað:„Já það er náttúrulega gríðarlega stór áfangi að það sé búið að auglýsa eftir tilboðum í útboðsverkið. Þetta er langþráð verkefni og mjög verðmætt fyrir okkur að sjá að framkvæmdir séu að fara í gang og það virðist vera mikill áhugi og við vonum það besta að það verði mörg tilboð,“ segir Erla.Kynningafundur fyrir verktaka á verkinu var á SAk nýverið og það var vel mætt. Mikill áhugi er á útboðinu sem er opið til 29. apríl á útboðsvef ríkisins„Mörg fyrirtæki hafa sótt gögnin í útboðskerfið. Þannig það lítur út fyrir að vera mikill áhu