Þyrla Landhelgisgæslunnar var síðdegis kölluð út til aðstoðar viðbragðsaðilum á Selfossi eftir að tilkynning barst uppúr klukkan fjögur um að maður hefði fallið í Ölfusá. Þetta staðfestir Magnús Ragnarsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi.Maðurinn fannst í ánni og var fluttur með þyrlunni á slysadeild. Lögreglan veitir ekki upplýsingar um líðan mansins.