Stórfelld líkamsárás í heimahúsi á Akureyri er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Til rannsóknar er hvort um tilraun til manndráps hafi verið að ræða. Tveir hafa verið handteknir grunaðir um aðild að málinu og hafa þeir verið úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald.Lögreglan greinir frá málinu í færslu á Facebook.Maður leitaði á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri aðfaranótt föstudagsins 10. apríl. Hann bar stunguáverka og undirgekkst skurðaðgerð. Hann er ekki í lífshættu„Rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og naut aðstoðar tæknideildar LRH við vettvangsrannsókn og sérsveitar RLS við handtökur,“ segir í færslu lögreglunnar.