Peter Magyar hefur á örstuttum tíma orðið eitt þekktasta nafnið í ungverskum stjórnmálum. Hann er lögfræðingur og hóf stjórnmálaþátttöku innan Fidesz-flokksins, sem hefur verið við völd í Ungverjalandi í 16 ár.Peter Magyar, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Ungverjalandi, gæti tekist að leggja Viktor Orban í kosningum á morgun. Orban vonast til þess að kerfið sem hann hefur byggt síðustu sextán árin tryggi honum tuttugu til viðbótar á valdastóli.Hann var því kannski ekki líklegastur til að veita Victor Orban forsætisráðherra mikla samkeppni í þessum kosningum. En það gæti farið svo að hann verði sá sem takist að koma honum frá.Magyar ólst upp í Búdapest. Hann er fæddur í mars 1981 og er því nýorðinn 45 ára. Hann útskrifaðist úr háskóla 2004, gegndi ýmsum störfum innan stjórnsýslunnar og var