Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, segir ekkert samfélag geta verið án barna. Grindavíkurnefndin lýsti því yfir í gær að hún mældi ekki með því að barnafjölskyldur myndu snúa aftur til bæjarins á meðan óvissa varir.Hún segir að afstaða nefndarinnar hafi komið bæjaryfirvöldum verulega á óvart.„Það er ekkert samfélag án barna og við ætlum bara að leggja megináherslu á það að hér verði örugg byggð fyrir fjölskyldur, við erum bjartsýn á það,“ sagði Ásrún í hádegisfréttum í dag.Grindavíkurnefndin kynnti rammaáætlun sína um endurreisn Grindavíkur í gær. Þar segir að stjórnvöld þurfi að undirbúa viðbragðsáætlanir fyrir fleiri möguleg gos- og hættusvæði á Reykjanesskaga, jafnvel samtímis.Til stendur að skólahald hefjist að nýju næsta haust í Grindavík en Grindavíkurnefn